Ertu að missa af sölu frá póstlistanum?
Póstlistinn þinn gefur þér beina leið að viðskiptavinum sem hafa þegar sýnt vörumerkinu þínu áhuga. Með sjálfvirkum tölvupóstflæðum geturðu fylgt þeim áhuga eftir og sent rétt skilaboð á réttum tíma.
Eitt, stakt gjald: 199.000 kr. + VSK


Gerður Guðnadóttir - markaðssérfræðingur með meistaragráðu í Brand and Communications Management frá CBS og víðtæka reynslu af vörumerkjastjórnun, markaðssetningu og efnisgerð.
Við setjum upp sjálfvirk Klaviyo-flæði sem fylgja viðskiptavinum eftir þegar þeir skrá sig á póstlistann, skoða vöru, skilja eftir körfu eða klára kaup.
Við sjáum um textagerð, hönnun, tæknilega uppsetningu og prófanir.
Af hverju skiptir póstlistinn máli?
Fólk heimsækir netverslunina þína á hverjum degi. Sumir skoða vörur, aðrir skrá sig á póstlistann og einhverjir setja vörur í körfu án þess að ljúka kaupunum.
Ef engin sjálfvirk tölvupóstflæði eru virk fær þetta fólk litla eða enga eftirfylgni frá fyrirtækinu.
Sjálfvirk flæði bregðast við því sem viðskiptavinurinn gerir á vefnum og senda viðeigandi tölvupósta án þess að þú þurfir að senda þá handvirkt. Þannig geturðu fylgt áhuganum eftir, byggt upp samband við viðskiptavininn og hvatt hann til að koma aftur.
Lestu meira: 5 sjálfvirk email-flæði sem skipta mestu máli fyrir sölu í netverslunum
Fjögur sjálfvirk flæði sem við setjum upp
01
Welcome sería
Fyrir nýja áskrifendur á póstlistanum.
Við kynnum vörumerkið, vinsælstu vörurnar og ástæður þess að versla við fyrirtækið.
02
Abandoned Cart
Fyrir viðskiptavini sem setja vörur í körfu en ljúka ekki kaupunum.
Tölvupóstarnir minna á vörurnar og auðvelda viðskiptavininum að halda áfram þar sem frá var horfið.
03
Browse Abandonment
Fyrir þekkta gesti sem skoða vöru en setja hana ekki í körfu.
Flæðið fylgir áhuganum eftir og leiðir viðskiptavininn aftur að vörunni.
04
Post-Purchase
Fyrir viðskiptavini sem hafa lokið kaupum.
Tölvupóstarnir bæta upplifunina eftir kaup, óska eftir umsögn og geta kynnt vörur sem passa við fyrri kaup.
Þetta er innifalið
- Uppsetning eða yfirferð á Klaviyo
- Tenging við Shopify eða WooCommerce
- Tölvupóstsniðmát í útliti fyrirtækisins
- Skráningarform eða pop-up fyrir póstlistann
- Fjögur sjálfvirk tölvupóstflæði
- Textagerð og hönnun fyrir flæðin
- Uppsetning, stillingar og prófanir
Vertu með allt tilbúið fyrir stóru söludagana
Nóvember er ekki rétti tíminn til að byrja alveg frá grunni.
Þegar samkeppnin um athygli viðskiptavina eykst er mikilvægt að hafa beina leið að fólki sem hefur þegar sýnt vörumerkinu áhuga.
Með rétt uppsettum póstlista þarftu ekki alltaf að reiða þig á greiddar auglýsingar til að ná aftur til sama fólks.
Svona fer ferlið fram
1
Við skoðum stöðuna
Þú sendir okkur upplýsingar um netverslunina, póstlistann og hvort Klaviyo sé þegar í notkun.
2
Við skipuleggjum flæðin
Við förum yfir vörumerkið, vörurnar og þau skilaboð sem eiga að koma fram.
3
Við skrifum og hönnum
Við útbúum tölvupóstana í útliti fyrirtækisins og sendum þá til yfirferðar.
4
Við setjum allt upp
Við tengjum kerfin, stillum flæðin og prófum að allt virki rétt.
5
Flæðin fara í loftið
Eftir samþykki eru flæðin virkjuð og byrja að vinna sjálfkrafa.
Klaviyo-grunnpakki
199.000 kr. + VSK
Hægt er að semja um dreifingu á greiðslumUppsetning sem inniheldur fjögur sjálfvirk flæði ásamt textagerð, hönnun, uppsetningu og prófunum.
Klaviyo-áskrift greiðist sérstaklega beint til Klaviyo.
Viltu senda reglulega á póstlistann en hefur ekki tíma til þess?
Þegar sjálfvirku flæðin eru komin í loftið getum við tekið að okkur fjórar reglulegar póstsendingar á mánuði.
Við skipuleggjum efnið í samráði við þig og sjáum um hugmyndavinnu, textagerð, hönnun, uppsetningu og tímasetningu.
Þessi þjónusta er valkvæð og hægt er að bæta henni við eftir að grunnpakkinn hefur verið settur upp.
59.000 kr + vsk. á mánuði - engin binding
Algengar spurningar
Þarf ég að vera með Klaviyo nú þegar?
Nei. Við getum sett upp nýjan Klaviyo-aðgang eða farið yfir og uppfært aðgang sem er þegar til staðar.
Virkar þetta með Shopify og WooCommerce?
Já. Pakkinn hentar netverslunum í Shopify og WooCommerce. Við skoðum tengingar og núverandi uppsetningu áður en verkefnið hefst.
Eru reglulegar póstsendingar innifaldar?
Nei. Pakkinn inniheldur sjálfvirku flæðin. Hægt er að bæta við mánaðarlegri þjónustu þar sem við sjáum um fjórar reglulegar póstsendingar á mánuði.
Nær Browse Abandonment til allra sem heimsækja vefinn?
Nei. Flæðið nær til gesta sem Klaviyo getur þekkt, til dæmis fólks sem hefur áður skráð sig á póstlistann eða gefið upp netfang.
