Viltu fleiri viðskiptavini og meiri sölu?

Marrland
Súlurit með vaxandi sölu og ör upp á við

Bakvið árangursríkar netverslanir síðan 2012

Með yfir áratug af reynslu í að byggja upp, skala og markaðssetja fyrirtæki á netinu, bæði fyrir okkur og aðra.

Okkar teymi

Snæþór Guðjónsson

Snæþór Guðjónsson

Frá 2012 hef ég byggt upp og skalað netverslanir sem selja á hörðum alþjóðamarkaði. Ég hef byggt upp samfélagsmiðla síður með yfir milljón fylgjendur og bloggsíður sem hafa safnað yfir 100 milljón heimsóknum. Ég veit hvað virkar í raunveruleikanum, því ég hef prófað það sjálfur.

Gerður Guðnadóttir

Gerður Guðnadóttir

Gerður er með meistaragráðu í Brand and Communications Management frá Copenhagen Business School og BSc í viðskiptafræði frá HR. Hún hefur starfað sem markaðsstjóri hjá Heimkaup.is og aha.is auk þess að reka eigin vefverslun. Hún býr yfir reynslu í stefnumótandi markaðssetningu, rekstri og vörumerkjastjórnun, sem og efnisgerð fyrir samfélagsmiðla, reels, tiktok og póstlista.

Sérfræðiþekking byggð á alvöru reynslu

Eftir að hafa unnið á hörðum alþjóðlegum markaði sé ég skýrt hvar íslensk fyrirtæki geta gert miklu betur á netinu. Hvort sem það er betri leitarvélabestun, betri vefsíður, öflugri auglýsingaherferðir eða markvissari söluferlar.

Stafræn markaðssetning

Ég heiti Snæþór Guðjónsson og frá 2012 hef ég byggt upp og skalað netverslanir sem selja á hörðum alþjóðamarkaði.

Ég stofnaði og byggði upp samfélagsmiðla síður með yfir milljón fylgjendur og bloggsíður sem hafa safnað yfir 100 milljón heimsóknum.

Stofnaði fæðubótarefna vörumerki sem framleiddi undir sínum eigin merkjum. Kom því á markað, skalaði upp og seldi svo til fjárfesta.

Ég veit hvað virkar í raunveruleikanum, því ég hef prófað það sjálfur.

Mbl.is fjölluðu meðal annars um eitt af mínum verkefnum á sínum tíma.

Markviss stafræn stefna skiptir öllu

Það hefur aldrei verið jafn mikilvægt að vera með skýra og framúrskarandi stafræna stefnu. Markaðurinn breytist hratt og þeir sem aðlagast síðast, tapa. Ef þú ert tilbúinn að taka næsta skref, þá er ég tilbúinn að hjálpa.