Fáðu meira út úr hverjum viðskiptavini með betri póstlista
Við byggjum upp sjálfvirk Klaviyo-flæði og sjáum um reglulega markpósta sem færa áhugasama gesti og fyrri viðskiptavini aftur inn í netverslunina. Þannig færðu meiri sölu úr hópnum sem þekkir þig nú þegar.
Klaviyo · Sjálfvirk flæði · Markpóstar · Endurkaup
[ TEKJUTÆKIFÆRIÐ ]
Þú hefur þegar borgað fyrir athyglina.
Fólkið á póstlistanum hefur heimsótt síðuna, sýnt vörum áhuga eða keypt áður. Án markvissrar eftirfylgni þarf reksturinn oft að greiða aftur fyrir næstu heimsókn — eða treysta á að fólk muni eftir honum sjálft.
Áður en fyrstu kaupum er lokið
Áhuginn dofnar
Fólk skoðar vöru eða skilur körfuna eftir. Rétt eftirfylgni getur fært það aftur að kaupunum meðan áhuginn er enn til staðar.
Eftir fyrstu pöntun
Næstu kaup fá enga hjálp
Nýr viðskiptavinur fær enga skýra ástæðu til að koma aftur, uppgötva viðeigandi aukavöru eða endurnýja það sem klárast.
Viku eftir viku
Póstlistinn stendur ónotaður
Vörur, sögur, umsagnir og tilboð fá ekki að vinna fyrir framan fólkið sem hefur þegar gefið leyfi fyrir frekara samtali.
Markviss email-markaðssetning hjálpar netversluninni að ná aftur í fleiri af þessum sölutækifærum án þess að kaupa nýja athygli í hvert skipti.
[ TVÆR ÞJÓNUSTULEIÐIR ]
Grunnurinn vinnur sjálfvirkt. Reglulegir póstar halda sölunni á hreyfingu.
Við getum byggt sjálfvirka grunninn, séð um áframhaldandi sendingar eða tekið hvort tveggja saman.
01
Uppsetning á sjálfvirkum Klaviyo-flæðum
Þetta er afmarkað uppsetningarverkefni. Við tengjum gögnin, skipuleggjum ferðalag viðskiptavinarins, skrifum textana, hönnum póstana og setjum flæðin í loftið. Síðan bregðast þau sjálfkrafa við skráningu, skoðun, kaupum og annarri hegðun á réttum augnablikum.
Eftirfylgni sem vinnur allan sólarhringinn á bak við tjöldin.
02
Reglulegir markpóstar á póstlistann
Við getum tekið að okkur áframhaldandi umsjón og sent til dæmis einn eða tvo pósta á viku. Við mótum efnis- og söluáætlun, veljum söluhorn, skrifum, hönnum, skiptum listanum upp eftir þörfum og lærum af því sem gerist eftir sendingu.
Fleiri ástæður til að snúa aftur, skoða og kaupa.
[ SJÁLFVIRKU FLÆÐIN ]
Réttur póstur þegar hegðunin gefur tilefni til.
Flæðin eru valin eftir vörunum, kaupferlinu og því hversu oft viðskiptavinir hafa raunverulega ástæðu til að kaupa aftur. Netverslun með daglegar neysluvörur þarf aðra eftirfylgni en verslun sem selur dýrari vörur sjaldnar.
01
Velkominn á póstlistann
Kynnir vörumerkið, leiðir nýjan áskrifanda að réttu vörunum og hjálpar fyrstu kaupunum af stað.
02
Skoðun, karfa og ólokið kaupferli
Eftirfylgni tekur mið af því hvort fólk skoðaði vöru, bætti í körfu eða komst lengra í greiðsluferlið áður en það hætti við.
03
Frá fyrstu pöntun í þá næstu
Fyrstu kaupunum er fylgt eftir með gagnlegum upplýsingum og viðeigandi næstu vöru í stað almennrar sölukveðju.
04
Endurkaup á réttum tíma
Áminning fer út þegar líklegt er að varan sé að klárast eða þörfin að koma aftur, miðað við eðli vörunnar og venjulega kauphegðun.
05
VIP og verðmætir viðskiptavinir
Kaupsaga og virkni eru notuð til að veita bestu viðskiptavinunum viðeigandi forgang, úrval eða eftirfylgni.
06
Áður en góður viðskiptavinur hverfur
Við finnum viðskiptavini sem eru komnir fram yfir sína eðlilegu endurkaupatíðni og gefum þeim raunverulega ástæðu til að snúa aftur.
Eftir vöruframboði geta einnig átt við flæði fyrir aftur á lager, verðlækkun, lága birgðastöðu, umsagnir og vörutengda krosssölu.
[ MARKPÓSTARNIR ]
Ástæða til að opna póstinn í hverri viku.
Sjálfvirku flæðin svara hegðun. Markpóstarnir skapa ný tilefni til að koma aftur í verslunina. Við getum sent vikulega eða tvisvar í viku og mótað sendingarnar eftir vörum, árstíð, lagerstöðu og því sem reksturinn þarf að selja hverju sinni.
Hver póstur fær skýrt hlutverk. Hann getur svarað algengri spurningu, sýnt nýja notkun á vöru, kynnt pakkatilboð, sagt sögu viðskiptavinar, sett vinsæla vöru í rétt samhengi eða skapað tímabært tilefni til kaupa.
Efnisáætlun · Söluhorn · Textaskrif · Hönnun · Markhópar · Prófanir · Sending
Vika 1
Söluhorn á vinsæla vöru
Eftirfylgni með sögu viðskiptavinar
Vika 2
Ný notkun á þekktri vöru
Pakkatilboð sett í samhengi
Vika 3
Svar við algengri spurningu
Tímabært tilefni til kaupa
[ MARRLAND ]
Við þekkjum leiðina alla leið í gegnum netverslunina.
Við höfum unnið við stafræna markaðssetningu og netverslanir í meira en 12 ár. Þess vegna skoðum við líka hvar fólk skráist, hvað það kaupir, hvaða vara á erindi næst, hvenær endurkaup eru líkleg og hvert hver póstur leiðir. Ef tilboðið, vörusíðan eða kaupferlið er að halda aftur af sölunni fáið þið skýr ráð um næstu skref.
Klaviyo-uppsetning, sölutextar, hönnun og netverslunarhugsun á einum stað.
[ ALGENGAR SPURNINGAR ]
Gott að vita áður en við byrjum.
[ HAFÐU SAMBAND ]
Láttu póstlistann vinna meira fyrir reksturinn.
Segðu okkur stuttlega frá netversluninni og núverandi póstlista. Við skoðum hvar stærstu tækifærin liggja.

