Pakkatilboð
Vörur sem eiga eðlilega saman eru settar í tilbúinn pakka með skýrum ávinningi. Viðskiptavinurinn fær einfaldara val og fyrirtækið selur fleiri vörur í sömu pöntun.
Viltu fleiri viðskiptavini og meiri sölu?
Við hönnum Shopify-verslanir sem gera fólki auðveldara að finna réttu vörurnar, treysta kaupferlinu og klára kaupin. Söluhvatar, pakkatilboð og snjöll krosssala hjálpa svo hverri pöntun að verða verðmætari.
[ MUNURINN ]
Þú getur keypt meiri umferð inn á síðuna, en ef fólk finnur ekki vöruna, treystir ekki næsta skrefi eða sér enga ástæðu til að kaupa meira verður stór hluti auglýsingakostnaðarins eftir á borðinu. Þess vegna hönnum við ekki bara útlitið. Við hönnum allt kaupferlið.
Hefðbundin vefsíðugerð
Áherslan er fyrst og fremst á liti, myndir og uppsetningu. Þegar síðan fer í loftið er verkefninu í raun lokið.
Marrland Shopify-verslun
Útlitið styður markmiðið, en kaupupplifunin ræður ferðinni. Vörusíður, karfa, tilboð, tengingar og eftirfylgni eru hugsuð sem eitt sölukerfi.
[ TVÆR LEIÐIR TIL MEIRI SÖLU ]
Söluvæn vefverslun vinnur stöðugt að tvennu: að fleiri gestir klári kaup og að hver viðskiptavinur finni fleiri vörur sem eiga raunverulega erindi í pöntunina.
01
Við fjarlægjum óþarfa núning úr kaupferlinu með skýrari vöruframsetningu, einfaldari leið að kauphnappnum, traustvekjandi upplýsingum og sterkri upplifun í síma. Því auðveldara sem er að velja og treysta næsta skrefi, því líklegra er að heimsóknin endi í pöntun.
Fleiri pantanir úr sömu umferð.
02
Við byggjum inn eðlilegar ástæður til að kaupa meira í einu, til dæmis með pakkatilboðum, viðeigandi aukavörum og skýrum ávinningi við hærra pöntunarverð. Markmiðið er ekki að troða vörum í körfuna, heldur að hjálpa viðskiptavininum að velja heildstæðari lausn.
Verðmætari pantanir án þess að kaupa meiri umferð.
[ SÖLUHVATAR ]
Söluhvati þarf ekki alltaf að vera afsláttur. Hann getur einfaldað valið, aukið upplifað virði eða minnt á vöru sem passar fullkomlega með því sem er þegar í körfunni. Við veljum aðeins þær lausnir sem eiga við um vörurnar, viðskiptavinina og framlegðina hjá hverju fyrirtæki.
Vörur sem eiga eðlilega saman eru settar í tilbúinn pakka með skýrum ávinningi. Viðskiptavinurinn fær einfaldara val og fyrirtækið selur fleiri vörur í sömu pöntun.
Betra verð við tvö, þrjú eða fleiri stykki getur gert stærri kaup að augljósari ákvörðun án þess að lækka verðið fyrir alla.
Tilboðið reiknast sjálfkrafa þegar skilyrðin eru uppfyllt. Enginn kóði sem þarf að muna og minni hætta á að viðskiptavinurinn detti út úr kaupferlinu.
Skýr framvindustika sýnir hversu lítið vantar upp á fría sendingu og gefur viðskiptavininum eðlilega ástæðu til að bæta einni viðeigandi vöru við.
Karfan verður virkur hluti af sölunni með skýrri yfirsýn, viðeigandi viðbótum og næsta skrefi sem er alltaf auðvelt að finna.
Viðeigandi aukavörur eru sýndar með vörunni eða í körfunni þegar þær bæta raunverulega við kaupin, í stað handahófskenndra tillagna.
Stærri pakkning, betri útgáfa eða heildstæðari lausn er kynnt á skýran hátt svo viðskiptavinurinn geti auðveldlega valið það sem hentar betur.
Aukavara eða gjöf við ákveðið pöntunarverð getur aukið upplifað virði og hvatt til stærri kaupa án þess að setja allt vöruúrvalið á afslátt.
Fyrir vörur sem klárast reglulega getum við einfaldað endurkaup eða sett upp áskriftarleið sem sparar viðskiptavininum tíma og styður við stöðugri tekjur.
Og þetta er aðeins hluti af möguleikunum. Rétta uppsetningin ræðst alltaf af því hvað þú selur, hver kaupir og hvað þarf til að gera ákvörðunina auðveldari.
[ VÖRUSÍÐAN ]
Góð vörusíða lætur viðskiptavininn ekki vinna fyrir upplýsingunum. Hún útskýrir ávinninginn, svarar efasemdum og gerir næsta skref augljóst, sérstaklega í símanum.
Viðskiptavinurinn skilur fljótt hvað varan gerir fyrir hann, ekki bara hvað hún er.
Verð, valmöguleikar, sendingar og lykilatriði eru sýnileg þar sem ákvörðunin er tekin.
Umsagnir, svör við algengum spurningum og skýrir skilmálar draga úr óvissu áður en hún stöðvar kaupin.
Pakkar, magnval eða viðeigandi aukavara hjálpa viðskiptavininum að finna heildstæðari lausn.
Mikilvægasta aðgerðin helst aðgengileg án þess að viðskiptavinurinn þurfi að leita aftur upp síðuna.
[ HÖNNUÐ FYRIR SÍMANN ]
Stór hluti viðskiptavina sér auglýsingu, skoðar vöruna og tekur ákvörðun í símanum. Þess vegna er farsímaútgáfan ekki minni útgáfa af tölvusíðunni. Hún er aðalupplifunin.
Við hönnum fyrir þumalinn: skýra leiðsögn, hraða vafraupplifun, læsilegar upplýsingar, einfalt vöruval og kauphnapp sem er alltaf innan seilingar.
Minni núningur í símanum þýðir færri ástæður til að hætta við.


[ MEIRA EN ÚTLITIÐ ]
Nákvæmt umfang fer eftir verkefninu, en við skoðum alltaf hvernig verslunin, gögnin og markaðssetningin þurfa að vinna saman frá fyrsta degi.
Við skilgreinum markhópa, mikilvægustu vörurnar og leiðina frá fyrstu heimsókn að pöntun.
Við byggjum hraðvirka, faglega og notendavæna verslun sem passar við vörumerkið.
Við gerum vöruúrvalið auðveldara að skilja, skoða og kaupa, jafnvel þegar vörurnar eru margar.
Við tengjum þau kerfi sem verkefnið þarf og prófum að leiðin frá körfu að staðfestri pöntun virki eðlilega.
Við setjum upp nauðsynlegar mælingar svo hægt sé að sjá hvað virkar og nýta gögnin í markvissari auglýsingar.
Þegar það á við tengjum við skráningar, yfirgefna körfu og sjálfvirk póstflæði svo sambandinu ljúki ekki við fyrstu heimsókn.
Innifalið umfang og kerfistengingar eru alltaf skilgreind skýrt í tilboði áður en verkefnið hefst.
[ VALIN SHOPIFY-VERKEFNI ]
Við höfum byggt og þróað Shopify-verslanir fyrir ólík vörumerki, vöruúrval og kaupferli. Hvert verkefni fær sína lausn, en markmiðið er alltaf það sama: að gera auðveldara að versla.

SHOPIFY · KAUPFERLI · PÓSTLISTI
Við endurhönnuðum Shopify-verslun Feed the Viking með skýrari vöruframsetningu, einfaldara kaupuflæði og sterkari tengingu við sjálfvirka póstlista- og markaðssetningu.
Skoða Feed the Viking
SHOPIFY · KERFISFLUTNINGUR · MÆLINGAR
Við færðum vefverslun Eylíf úr WooCommerce yfir í Shopify og byggðum upp nýjan söludrifinn grunn ásamt gagnaflutningi, áskriftartengingum og mælingum.
Skoða Eylíf
SHOPIFY · VEFHÖNNUN · PÓSTLISTI
Við færðum Hafkalk úr eldra kerfi yfir í Shopify og byggðum upp nútímalegri verslun með skýrara vöruúrvali, einfaldara kaupuflæði og tengingu við póstlistann.
Skoða Hafkalk[ FERLIÐ ]
Við förum yfir vörurnar, viðskiptavinina, núverandi gögn og hvað þarf að gerast til að verkefnið teljist vel heppnað.
Við skipuleggjum vöruflokka, lykilsíður, söluhvata og leiðina frá fyrstu heimsókn að pöntun.
Við setjum verslunina upp í Shopify, aðlögum hana að vörumerkinu og vinnum sérstaklega með upplifunina í síma.
Við yfirförum greiðslur, sendingar, mælingar og helstu kaupferla áður en verslunin fer í loftið.
Eftir opnun er hægt að fylgjast með hegðun, bæta það sem skiptir máli og tengja verslunina enn betur við auglýsingar og póstlista.
[ NÆSTA SKREF ]
Segðu okkur hvað þú selur og hvar þú ert stödd eða staddur í ferlinu. Við skoðum verkefnið og leggjum til Shopify-lausn sem hentar rekstrinum.