Viltu fleiri viðskiptavini og meiri sölu?

Marrland

Vertu sýnilegri þegar fólk leitar.

Við greinum hvernig viðskiptavinir leita, lagfærum það sem heldur síðunni aftur og leitarvélabestum efnið fyrir réttu leitarorðin. Markmiðið er stöðugri straumur af verðmætum heimsóknum sem geta orðið að fyrirspurnum og sölu.

[ LEITIN ]

Fólkið sem leitar er þegar komið af stað.

Það er að reyna að leysa vandamál, bera saman valkosti eða finna fyrirtæki sem getur tekið við. Leitarvélabestun hjálpar þér að vera sýnilegri á þessum augnablikum, áður en ákvörðunin er tekin.

Leitar að svari

Kynnist fyrirtækinu fyrr

Gagnlegt efni svarar spurningunni, byggir upp traust og leiðir fólk áfram að viðeigandi vöru eða þjónustu.

Ber saman valkosti

Sér skýrt af hverju þú átt erindi

Vel uppbyggðar þjónustu- og vörusíður hjálpa fólki að skilja virðið, bera saman og taka næsta skref af meiri vissu.

Tilbúið að kaupa eða hafa samband

Finnur réttu lendingarsíðuna

Leit með skýran kaupásetning á að leiða beint að síðu sem svarar þörfinni og gerir næsta skref einfalt.

Við kortleggjum þessa leit og forgangsröðum þeim síðum sem eiga mest erindi inn í ákvörðun viðskiptavinarins.

[ GRUNNURINN ]

Skýr forgangsröðun frá fyrstu greiningu.

Við byrjum á því að finna hvar eftirspurnin og raunhæfustu tækifærin mætast. Síðan færum við vinnuna inn á vefinn og mælum hvað breytist.

01

Leitarorð og samkeppni

Við skoðum hvernig fólk leitar, hvað það vill fá svar við og hvaða síður eru þegar að vinna leitina. Leitarorðin eru metin út frá ásetningi, samkeppni og virði fyrir reksturinn.

02

Tæknilegur grunnur

Við yfirförum hvort leitarvélar geti fundið, lesið og skilið mikilvægustu síðurnar. Síðuskipulag, skráning, lýsigögn, innri tenglar, hraði og viðeigandi structured data eru lagfærð eftir þörfum.

03

Síður og textar

Við leitarvélabestum mikilvægustu textana og mótum nýjar síður þegar vantar raunverulegt svar við verðmætri leit. Bloggefni er notað þegar það styður ferðalag viðskiptavinarins og hefur skýrt hlutverk.

04

Mælingar og næstu skref

Við notum meðal annars Search Console og vefmælingar til að fylgjast með leitum, sýnileika, lendingarsíðum og þeim aðgerðum sem skipta reksturinn máli. Gögnin hjálpa okkur að velja næsta tækifæri.

Google og AI-leit

Traustur SEO-grunnur nýtist líka í nýju leitarumhverfi.

AI-knúin leit byggir áfram á síðum sem eru aðgengilegar, skýrar og gagnlegar. Sama vandaða grunnvinna styður sýnileika þar: sérhæft efni, traustar upplýsingar og tæknileg uppsetning sem leitarvélar geta unnið með.

[ REYNSLAN ]

SEO-reynsla úr eigin rekstri.

Snæþór hefur frá 2012 byggt upp efnisvefi og netverkefni fyrir alþjóðlegan markað. Bloggsíður sem hann byggði upp hafa samanlagt fengið yfir 100 milljónir heimsókna.

Sú reynsla mótar nálgun Marrland: að velja leitarorðin af skynsemi, búa til efni sem á erindi og tengja sýnileikann við það sem þarf að gerast næst á vefnum. Umferðin hefur lítið virði ef hún leiðir engan áfram.

Yfir 100 milljónir

heimsóknir á efnisvefi sem Snæþór byggði upp

[ ÞJÓNUSTAN ]

Byrjum á grunninum. Byggjum síðan áfram.

Sum fyrirtæki þurfa afmarkaða uppsetningu. Önnur vilja stöðuga vinnu til að byggja sýnileika á fleiri leitum með tímanum.

01

SEO-greining og grunnvinna

Við gerum leitarorða- og samkeppnisgreiningu, yfirförum tæknilega stöðu, mótum síðuskipulag og leitarvélabestum mikilvægustu síðurnar. Mælingar eru settar upp svo skýr mynd fáist af stöðunni og næstu tækifærum.

Traustur grunnur og skýr forgangsröðun.

02

Mánaðarleg SEO-uppbygging

Við fylgjum leitarniðurstöðum og Search Console eftir, uppfærum efni og byggjum nýjar síður í takt við tækifærin. Bloggefni getur verið hluti af vinnunni þegar það styður leitarhegðun og ferðalag viðskiptavinarins.

Sýnileiki sem fær tíma og stöðuga vinnu til að vaxa.

[ ALGENGAR SPURNINGAR ]

Það sem gott er að vita áður en SEO-vinna hefst.

[ NÆSTA SKREF ]

Láttu fyrirtækið þitt finnast þegar þörfin er til staðar.

Við skoðum núverandi stöðu, samkeppnina og hvar raunhæfustu tækifærin liggja. Síðan leggjum við til skýra leið áfram.