Viltu fleiri viðskiptavini og meiri sölu?

Marrland

[ EMAIL MARKAÐSSETNING ]

5 sjálfvirk email-flæði sem skipta mestu máli fyrir sölu í netverslunum

Hvernig þú breytir fleiri heimsóknum í kaupendur (án þess að eyða meiri pening í auglýsingar).

Stílfærð ör sem sýnir vöxt upp á við
Snæþór Guðjónsson hjá Marrland

Snæþór Guðjónsson - Seinustu 16 árin hef ég byggt upp fjöldan allan af netverslunum á hörðum alþjóða mörkuðum.

Þegar við byggjum upp netverslanir sem eiga að ganga betur en samkeppnin, þá byrja ég m.a. alltaf á að setja upp sjálfvirk sölukerfi í póstlistakerfum.

Sjálfvirk flæði (e. automatic email marketing flows) eru ein öflugasta leiðin til að auka sölu án þess að þurfa stöðugt að eyða peningum í að auglýsa.

Samt virðist þetta vera ein vanmetnasta leiðin til árangurs hjá netverslunum hér á Íslandi.

Með rétt uppsettum sjálfvirkum flæðum getur netverslunin þín verið að:

  • selja vörur eða þjónustu
  • minna viðskiptavini á sig
  • byggja upp samband og traust

.... án þess að þú þurfir að gera neitt aukalega.

Þú setur þessi kerfi upp og helst gleymir þeim það sem eftir er.

Svo vinna þau fyrir þig, allan sólarhringinn, alla daga.

Hér fyrir neðan eru fimm helstu sjálfvirku email flæðin sem allar netverslanir ættu að nýta sér, að mínu mati.

01

Velkominn á póstlistann

Klaviyo velkomuflæði sem skiptir nýjum áskrifendum eftir fyrri kaupum

Þetta er basic flæði sem allir verða að hafa.

Þú vilt allra helst skipta flæðinu upp þannig fólk fái mismunandi skilaboð eftir því hvort það sé búið að kaupa af þér eða ekki.

Þá geta skilaboðin verið hnitmiðaðari og persónulegri.

Ég myndi mæla með að hafa þetta flæði allt að 10 daga langt, en það fer eftir því hvernig vörur eða þjónustu þú ert með.

Nýttu þetta flæði til að kynna vörurnar og byggja upp traust.

02

Eftirfylgni af körfu sem var skilin eftir

Klaviyo flæði með þremur tölvupóstum eftir ólokið kaupferli

Þetta er líklega lang mikilvægasta flæðið upp á að auka sölu.

Margar netverslanir hafa þetta flæði nú þegar að einhverju leyti, til dæmis innbyggt frá Shopify sem er ópersónulegt og einfalt.

Að mínu mati eru flestar íslenskar netverslanir ansi ragar við að gera þetta almennilega.

Þegar tilvonandi viðskiptavinur setur vörur í körfu, ætlar að ganga frá pöntun, en hættir við af einhverri ástæðu, þarftu að hafa samband fljótt.

Ég mæli með að senda fyrsta "abandoned cart" emailið eftir 1 klst.

Svo það næsta 12-24 klst síðar.

Og svo aftur eftir tvo daga.

Ef viðskiptavinurinn er ekki búinn að ganga frá kaupum eftir það, þá viltu helst að hann "taggist" og verði færður yfir í annað flæði þar sem þú byggir upp meira og betra traust.

03

Eftirfylgni eftir kaup sem hvetur til næstu pöntunar

Klaviyo eftir-kaup flæði fyrir nýja, endurtekna og trygga viðskiptavini

Í stafrænum heimi þar sem lætin á markaðnum hafa aldrei verið meiri, og "brand loyalty" hefur örugglega aldrei verið minna...

Þarftu að fylgja eftir þeim sem hafa keypt af þér alveg ótrúlega vel.

Í fyrsta lagi viltu gefa þeim hjálp með hvernig sé best að nota vöruna/þjónustuna, ef það á við.

Mörgum finnst erfitt að versla á netinu, en hér getur þú komið til skila að þið séuð til staðar og eruð tilbúin að aðstoða með allt sem gæti farið úrskeiðis.

Það mikilvægasta er að þú viltu reyna tryggja að viðskiptavinurinn versli aftur af þér.

Hvort sem það er viku, mánuði eða ári síðar þá viltu gera allt til þess að hann komi aftur til þín.

Það getur verið kostnaðarsamt fá nýjan viðskiptavin, en mun ódýrara að fá sama viðskiptavin til að kaupa aftur og aftur.

Byggðu upp þínar vörur og þjónustur þannig að viðskiptavinur geti keypt aftur af þér, og vilji það.

Þeir sem eru að sigra samkeppnina í dag eru að fókusa mest á "Lifetime customer value".

04

Þegar fólk skoðar vörur en bætir þeim samt ekki í körfu

Klaviyo flæði sem fylgir eftir þegar áskrifandi skoðar vöru án þess að kaupa

Browse abandonment flæði hafa reynst mér líka mjög vel.

Þegar einstaklingur á póstlistanum þínum skoðar vörur í vefversluninni, og fer svo af síðunni án þess að gera neitt annað, þá fær tölvupóstskerfið tilkynningu um það og þá getur þú sent honum sjálfkrafa tölvupóst.

Oftast mæli ég með að senda eftir 2 klst og aftur sólarhring síðar.

Það sem hefur reynst mér vel er að hafa subject line-ið í póstinum eitthvað eins og "Vinsælar vörur í dag".

Þá myndi ég setja vöruna sem var skoðuð ofarlega, en hafa svo lista yfir aðrar vinsælar vörur neðar í tölvupóstinum.

Í staðin fyrir "Þú varst að skoða þetta".

En þetta fer eftir aðstæðum hjá hverju og einu fyrirtæki.

05

Upsell strax eftir kaup

Klaviyo flæði sem býður viðeigandi viðbót eftir staðfesta pöntun

Hamra járnið meðan það er heitt.

Reyndu að búa til hvata til þess að auka virði hverrar meðalpöntunar.

Helst á vefverslunin sjálf að vera uppsett þannig að hún hvetur til stærri kaupa.

Með "upselli" í körfu. Til dæmis að bjóða upp á "oft keypt með þessari vöru", eða með boð um að uppfæra í stærri pakka eða magnafslætti.

O.s.frv.

En svo á þetta flæði að triggerast sem seinasti séns sem áminning til að taka einhvers konar pakka díl eða til að bæta við pöntunina með afslætti.

Það er samt mjög mikilvægt að orða þennan tölvupóst rétt svo viðskiptavinurinn fái ekki efasemdir um það sem hann var nú þegar að panta.

Möguleikarnir eru endalausir

Þessi fimm sjálfvirku flæði eru þau helstu sem ég nota sjálfur, bæði fyrir mig, og þá sem eru í þjónustu hjá okkur í Marrland.

Það er auðvitað mjög mismunandi hvað hentar hverjum og einum rekstri, en þetta er mjög líklega góður grunnur.

Einn helsti kosturinn við stafræna markaðssetningu og að vera með opna vefverslun, eru allir þessir möguleikar.

Að geta haft samband við viðskiptavin sem setti vörur í körfu en hætti við kaupin, er ótrúlega dýrmætt og sambandið við viðskiptavininn verður persónulegra.

Ef þig vantar aðstoð við að auka sölu í vefversluninni þinni, þá ekki hika við að hafa samband við okkur.