BLACK FRIDAY OG JÓLASALAN
Fáðu meira út úr Black Friday og jólasölunni.
Við tökum að okkur Meta auglýsingarnar og póstlistann og hjálpum þér að bæta vefverslunina. Markmiðið er að fleiri heimsóknir verði að kaupum og að þú fáir meira út úr söludögunum.
Þú færð skýrt plan og okkur til að halda utan um framkvæmdina á meðan þú sinnir rekstrinum.
Segðu okkur frá versluninni og við skoðum hvað hentar þér.

Við höfum meðal annars unnið með
Þínir viðskiptavinir munu líka sjá tilboð samkeppninnar.
Á Black Friday og í aðdraganda jólanna eru allir að reyna að ná athygli sama fólksins. Samkeppnisaðilarnir munu líka auglýsa, senda pósta og minna á tilboðin sín.
Þá skiptir máli að þín verslun sé tilbúin. Skýr tilboð, gott auglýsingaefni og markviss eftirfylgni geta ráðið miklu um hvar fólk endar á að kaupa.
Undirbúningurinn tekur tíma. Þegar söludagarnir eru byrjaðir er minna svigrúm til að græja efnið, laga það sem vantar og prófa nýjar hugmyndir.
Auglýsingarnar, póstlistinn og vefverslunin þurfa að spila saman.
Auglýsingin vekur áhugann. Póstlistinn færir fólk aftur að tilboðinu. Vefverslunin gerir því auðvelt að ganga frá kaupunum.
Við höldum utan um þessa heild með það að markmiði að þú seljir meira, komir lagernum á hreyfingu og fáir meira út úr auglýsingafénu.
Meta auglýsingar sem styðja við söluna
Við skipuleggjum herferðirnar, skrifum auglýsingatexta og útbúum einfalt grafískt efni úr því myndefni sem þú átt. Við förum yfir mælingarnar, prófum mismunandi skilaboð og fylgjum árangrinum eftir svo auglýsingaféð nýtist sem best.
Póstlisti sem fær fólk aftur í verslunina
Við skipuleggjum, skrifum og hönnum markpósta sem kynna tilboðin og minna á þau á réttum tíma. Við yfirförum líka sjálfvirku flæðin, svo hægt sé að fylgja eftir nýjum skráningum og ókláruðum kaupum meðan áhuginn er enn til staðar.
Vefverslun sem auðveldar kaupin
Við skoðum hvað tekur við eftir smellinn. Eru tilboðin auðfundin? Er ávinningurinn skýr á vörusíðunum? Er einfalt að kaupa í símanum? Við hjálpum þér að forgangsraða einföldum breytingum sem geta breytt fleiri heimsóknum í pantanir.
Við ákveðum umfangið út frá stöðu verslunarinnar. Þú getur fengið Meta og póstlistann í umsjón saman eða byrjað á því sem þú þarft mest á að halda.
Við hjá Marrland höfum unnið við stafræna markaðssetningu og netverslanir í meira en 12 ár.
Svona byrjum við.
- 1.
Við skoðum stöðuna.
Þú segir okkur frá versluninni, því sem hefur verið prófað og hvað þú vilt selja næstu mánuði.
- 2.
Við gerum skýrt plan.
Við ákveðum áherslur, umfang og auglýsingafjármagn. Þú færð tilboð og veist hvað við tökum að okkur áður en við byrjum.
- 3.
Við undirbúum og fylgjum eftir.
Við græjum herferðirnar og póstana, fylgjumst með því sem skilar sölu og gerum breytingar eftir þörfum.
Gott að vita áður en við byrjum.
Komum þessu í gang áður en söludagarnir byrja.
Það er nóg að gera í daglegum rekstri og undirbúningur markaðssetningarinnar getur auðveldlega setið á hakanum. Við hjálpum þér að koma skýru plani í framkvæmd svo þú hafir meiri tíma fyrir verslunina og viðskiptavinina.
Því fyrr sem við byrjum, því meiri tími gefst til að undirbúa efnið og prófa hvað virkar. Þegar viðskiptavinirnir eru tilbúnir að kaupa viltu að allt sé tilbúið hjá þér líka.
Segðu okkur frá versluninni og því sem þú vilt ná fram. Við svörum með næstu skrefum og tilboði sem hentar verkefninu.























